Jæja nú er ég í sældinni fyrir norðan sem er hið besta mál. Það er lítil hætta á að við sólrennum því sólin hefur ekki skinið að neinu ráði.
Eins og venjulega hef ég lítið heimsótt fólk en haldið mig mikið í sveitinni enda liggur stelpunum ósköp mikið á að fara aftur í sveitina ef við bregðum okkur af bæ.
Fór í Brúðkaup Rósu og Jónbjörns síðustu helgi sem var hið glæsilegasta í alla staði, Gestirnir voru hvorki meira né minna en 160 manns sem er nú ekki lítið. Rósa gifti sig nátturulega í Munkaþvérárkirkju og var það sóknarpresturinn okkar gamli sem gaf þau saman.
Næstu helgi heldur Danía Rut svo afmælið sitt í sveitinni. Við höfum verið í sumarfríi fyrir norðan þegar hún á afmæli síðan við Arna skildum. Svo daman tók sko ekki í mál að halda það annars staðar hún ætlaði sko að verða 6 ára í sveitinni hjá Ömmu. Hún nær því nú tæplega þar sem við leggjum í suðurferð snemma á afmælisdaginn hennar. En það er stemmingin sem skiptir öllu.
Nú er það bara af mér að frétt að ég er fluttur í Seljahverfið og það er hið besta mál þar sem nú er ég í göngufæri frá vinnu, verslunum og nokkrum vinum. Magnað það.
Njótið sumarsins Kveðja Davíð.